1.4.2009 | 18:19
Spakmæli dagsins
Eitt bros-getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar,
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
(Einar Benediktsson)
1.4.2009 | 18:10
Siðlaust
Fjórir stærstu bankar Svíþjóðar greiddu starfsmönnum sínum 5,7 milljarða sænskra króna (sem samsvarar um 85 milljörðum íslenskra kr.) í kaupaukagreiðslur í fyrra. Þetta var gert þrátt fyrir að verðmæti eigna bankanna hafi skroppið verulega saman. Þetta kemur fram í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter.
Hvernig er þetta eiginlega með þá menn sem verða bankastarfsmenn, verða þeir algerlega siðlausir og skynja ekki lengur verðgildi peninga. Við vitum öll hvernig þetta var hér á landi. En svo varð ég alveg steinhissa þegar fréttist um laun hjá þeim sem eru í skilanefndum bankanna og gagnrýna fyrrverandi bankastjóra fyrir bruðl og fá svo sjálfir þrjár milljónir á mánuði. Þannig að tími ofurlauna er ekki liðinn á Íslandi.
![]() |
85 milljarðar í kaupaukagreiðslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2009 | 18:03
ASÍ
Miðstjórn ASÍ telur nauðsynlegt að settar verði siðareglur um fjárfestingar lífeyrissjóða og fyrirmyndareglur um daglega starfsemi þeirra, þ.m.t. starfskjör, gjafir, risnu og ferðalög, og þær verði kynntar fyrir ársfundi lífeyrissjóðanna. Miðstjórnin segist harma þann fréttaflutning og framsetningu sem fjölmiðlar hafi kosið að nota í umfjöllun um málefni lífeyrissjóðanna, þar sem stjórnir og starfsmenn þeirra séu ómaklega ásökuð um refsiverða framsetningu ársreikninga og réttinda sjóðsfélaga.
Komin tími til að hreins aðeins til í þessu kerfi. Það þýðir lítið fyrir þessa höfðingja að harma fréttaflutning af málefnum lífeyrissjóðanna. Þessar fréttir eru bara um hvernig menn hafa hagað sér, sem stjórna þessum sjóðum. Eða finnst þeim ekki neitt fréttnæmt við að laun forstjóra sjóðanna séu tugir milljóna á ári auk ýmissa hlunninda.
![]() |
ASÍ vill siðareglur um lífeyrissjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2009 | 17:57
Sparnaður
Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi VG segir borgaryfirvöld hygla byggingaverktökum á kostnað skólabarna. Borgin ætli að hækka leikskólagjöld og draga úr kennslu meðan verktakar fái fimmhundruð milljónir í verðbætur vegna kreppunnar. Formaður borgarráðs segir borginni forðað frá málaferlum.
Alltaf finnur íhaldið leið til að hygla að sínum, svo eru að koma kosningar þá er auðvitað ekki hægt að láta þessa kalla vera peningalausa. Kosningarsjóðirnir þurfa sitt. Fólk getur auðveldlega sloppið við að greiða leikskólagjöld með því að hætta að eignast börn. Annars var ég að lesa viðtal við Kjartan Magnússon (D) varðandi leikskólagjöldin og hann sagði að þetta væri alveg í samræmi við áætlanir sem gerðar hefðu verið.
Hvernig geta verktakar krafist aukagreiðslu frá borginni vegna kreppunnar, gerðu þessir verktakar ekki ákveðin tilboð sem þeir verða að standa við eða var samið bak við tjöldin um þessar aukagreiðslur. Það hefur aldrei verið hagstæðara en í dag að fá verktaka til að bjóða í verk og útboð Vegagerðarinnar sýna að slegist er um hvert útboð. Þannig að þetta er nú frekar ódýr afsökun hjá Óskari Bergssyni.
![]() |
Verktakar fram fyrir skólabörn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2009 | 17:42
Mótmæli
Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, hefur blásið til setuverkfalls stúdenta á skrifstofu rektors á morgun. Stúdentar krefjast þess að teknar verði upp sumarannir þar sem margir þeirra sjá fram á atvinnuleysi í sumar.
Þetta finnst mér gott hjá Röskvu, því námsmenn verða í miklum erfiðleikum í sumar. Enga vinnu að fá og þeir eiga fæstir rétt á atvinnuleysisbótum, sem mér finnst reyndar talsvert skrýtið því nám er jú hörku vinna. Sem betur fer eigum við mjög góðan menntamálaráðherra, sem mun hafa fullan skilning á þessu vandamáli og engum væri treystandi betur en Katrínu Jakobsdóttur til að leysa þennan vanda.
![]() |
Blása til setuverkfalls á skrifstofu rektors |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2009 | 17:36
1. aprílgabb
Heldur óvenjulegar tilkynningar heyrðust lesnar upp á Rás 2 rétt fyrir kl. 14 í dag þar sem m.a. írskir þrælar og leðurhommar komu við sögu. Ólafur Páll Gunnarsson, umsjónarmaður Popplands, segir að um gamlar upptökur úr safni Ríkisútvarpsins hafi verið að ræða.
Það er best að kaupa nokkur stykki af kvenkyni og verðið skiptir ekki máli því ég á enn töskuna góðu með öllum peningunum.
![]() |
Írskir þrælar til sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2009 | 17:32
Landhelgisgæslan
Nú berast fréttir af því að Landhelgisgæslan sé í viðræðum við Norðmenn um leigu á hinu nýja varðskipi sem er verið að smíða í Chile. Svo aumur er fjárhagurinn hjá þessari stofnun að aðeins er hægt að kaupa olíu á annað varðskipið í einu og verður hitt þá að liggja í höfn á meðan eða í um einn mánuð í einu.. Þessari stofnun eru falin mikilvæg hlutverk sem þarf að sinna og hvernig á það að vera hægt með aðeins einu varðskipi í 200 sjómílna lögsögu. Gæsla hefur eftirlit með að ekki sé veitt á ákveðnum svæðum og fer reglulega um borð í fiskiskip til að athuga hvort löglega sé lögskráð á skipin og skoðar veiðarfæri ofl. eftirlit. Gæslan á líka von á nýrri flugvél og ætli hún verði ekki leigð líka, því nú hefur verið ákveðið að draga stórlega úr öllu flugi. Til hvers þarf Gæslan nýja flugvél, þegar ekki eru til peningar til að fljúga þeirri eldri? Við núverandi tekjur er Landhelgisgæslunni ómögulegt að sinna því sem henni er falið. Svo erum við með Varnarmálastofnun sem mun víst kosta einhverja milljarða á ári að reka. Allt það sem Varnarmálastofnun gerir gæti Gæslan auðveldlega sinnt. Væri því ekki upplagt að sameina þessar stofnanir og nýta fjármunina betur. Þá væri kannski hægt að halda báðum núverandi varðskipum í rekstri samtímis og við gætum stoltir tekið við hinu nýja varðskipi og nýrri flugvél. Landhelgin eru okkar landamæri og varðskipin og flugvélarnar okkar landamæraverðir.
Það þætti skrýtið hjá sjálfstæðri þjóð ef hún gæti ekki sinnt landamæraeftirliti nema annan hvern dag eða annan hvern mánuð og svo væri allt galopið þar á milli. Eins væri það ef tollgæslan sinnti bara tollgæslu annan hvern mánuð og sjúkrahús tækju ekki við sjúklingum nema annan hver mánuð. Þetta er staðan hjá Landhelgisgæslu Íslands í dag. Ég er einn af þeim sem hef notið þjónustu hjá þyrlu Gæslunnar eftir alvarlegt slys á sjó og veit því hve mikilvægt þetta er fyrir öryggi sjómanna. Hvað ætli fólk segði ef einhver slasaðist alvarlega út á sjó eða inn á örævum og óskað væri eftir þyrlu til aðstoðar og fengi eftirfarandi svar;
Því miður er þetta ekki hægt, því við eigum ekki eldsneyti á eina þyrlu.
1.4.2009 | 16:54
Niðurskurður
Það er okkar mat að öryggi íbúa á Þórshöfn og í Þistilfirði sé ógnað. Það eru 64 kílómetrar í næsta sjúkrabíl á Raufarhöfn og þessi leið er oft illfær. Það eru því að lágmarki 40 til 45 mínútur í sjúkrabíl, segir Konráð Jóhannsson, fyrrverandi sjúkraflutningamaður á Þórshöfn.
Það er eins og þessi möppudýr í ráðuneytunum líti bara á landakortið og mæli vegalengdir út frá því og reikna svo með að þessir vegir séu alltaf færir og jafn greiðfærir og t.d. Reykjanesbrautin. Þetta mun víst vera sparnaður fyrir kr: 1.600 þúsund á ári og vegur því mjög lítið í öllum þeim niðurskurði sem þarf að fara fram í heilbrigðiskerfinu. Nú er ekki lengur hægt að treysta á þyrlur því það þarf að spara svo mikið hjá Landhelgisgæslunni. Hvers virði er eitt mannslíf í augum þeirra sem leggja fram svona tillögur.
![]() |
Öryggi íbúa ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2009 | 16:44
Hvalaskoðun
Hvalaskoðunarsamtök Íslands hafna alfarið þeim tillögum sem starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar hafa sett fram afmörkun svæða til hvalaskoðunar. Segja samtökin að tillagan beri þess ríkulega merki að Hafrannsóknastofnun hafi frá upphafi verið málpípa hvalveiðimanna og hvalveiðistefnu stjórnvalda hverju sinni.
Hverskonar andskotans frekja er þetta hjá þessum hvalaskoðunarfyrirtækjum. Telja þeir sig hafa einkarétt á að sigla um ákveðin hafsvæði við Ísland. Það á ekki að hlusta á svona rugl. Hvalveiðar og hvalaskoðun geta ágætlega farið saman, en þá má annar aðilinn ekki heimta að hinn sé útilokaður frá sinni starfsemi. Ég held að þegar hvalveiðarnar hefjast fyrir alvöru verði ferðamönnum mest seldar ferðir upp í Hvalfjörð til að skoða hvalina. Það er sú samkeppni sem þessir aðilar eru hræddir við.
![]() |
Hafna tillögum um hvalaskoðunarsvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 16:35
Hvað á ég að gera?
Í morgun þurfti ég að fara til Reykjavíkur og á hringtorginu sem skiptir leiðum til Flugstöðvarinnar, Reykjavíkur og Voga, lá í vegkanntinum svört skjalataska og virtist hafa verið hennt út úr bíl. Ég stoppaði og tók töskuna og hélt síðan áfram og skömmu seinna mætti ég lögreglubíl með blikkandi ljósum. Þegar ég var kominn til Reykjavíkur fór ég á Kaffivagninn við Grandagarð og hafði töskuna fínu með mér. Þegar ég var búinn að drekka kaffi fór ég að athuga hvað væri í töskunni og var auðvelt að opna hana. Þegar ég sá innihaldið þá var næstum því liðið yfir mig. Í töskunni voru hvorki meira né minna en 500 þúsund dollarar eða 575 milljónir íslenskra króna. Ég fór síðan heim aftur og setti töskuna inn í skáp og í allan dag hef ég verið að brjóta heilan um hvað ég ætti að gera. Á ég bara að hirða þessa peninga eða vera góður borgari og fara til lögreglunnar og skila töskunni. Ef ég fer til lögreglunnar er ég hræddur um að lenda í miklum yfirheyrslum og jafnvel settur í fangelsi, því ég get á engan hátt gert grein fyrir þessum peningum og ekki víst að lögreglan trúi því að ég hafi bara fundið þá. Það hefur hvarlað að mér að fara á einhvern stað og brenna þessa peninga, en samt væri gott að eiga þá. Ég er viss um að einhver útrásarvíkingurinn hefur átt þessa tösku og ætlað úr landi með þessa peninga en frétt að lögreglan væri á eftir honum og því ekki þorað að taka hana með sér og því hennt henni út úr bílnum.
Nú verð ég að biðja ykkur mínu kæru bloggvinir um ráð;
Hvað á ég að gera?
Bloggfærslur 1. apríl 2009
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 802121
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
185 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- PRADA á tískuviku í Mílanó
- Hlutleysi er sverð Íslands og skjöldur
- Hvað stjórnar þessari þjóð ?
- Álit álitsgjafa einskins vert
- The Original Sin
- HÚN ÞARF NÚ AÐ FARA AÐ ENDURSKOÐA "FORGANGSRÖÐUNINA" HJÁ SÉR.......
- "Það er búið að kveikja í púðurtunnunni"
- Óheiðarleg framsetning á ,,Pride
- Frá tískuviku herra í Mílanó
- Stríð og stærsta olíukreppa allra tíma
Af mbl.is
Innlent
- Á annan tug Íslendinga í Íran og Ísrael
- Farsíma- og netþjónusta komin í lag
- Innkalla geislavirka límmiða
- Munar 31 krónu á lítra 50 metrum frá
- Krefjast þess að ríkisstjórnin fordæmi árásir
- Vignir Íslandsmeistari í annað sinn
- Maðurinn sem lýst var eftir er kominn í leitirnar
- Handtekinn með hníf í heimahúsi