Hvað á ég að gera?

Í morgun þurfti ég að fara til Reykjavíkur og á hringtorginu sem skiptir leiðum til Flugstöðvarinnar, Reykjavíkur og Voga, lá í vegkanntinum svört skjalataska og virtist hafa verið hennt út úr bíl.  Ég stoppaði og tók töskuna og hélt síðan áfram og skömmu seinna mætti ég lögreglubíl með blikkandi ljósum.  Þegar ég var kominn til Reykjavíkur fór ég á Kaffivagninn við Grandagarð og hafði töskuna fínu með mér.  Þegar ég var búinn að drekka kaffi fór ég að athuga hvað væri í töskunni og var auðvelt að opna hana.  Þegar ég sá innihaldið þá var næstum því liðið yfir mig.  Í töskunni voru hvorki meira né minna en 500 þúsund dollarar eða 575 milljónir íslenskra króna.  Ég fór síðan heim aftur og setti töskuna inn í skáp og í allan dag hef ég verið að brjóta heilan um hvað ég ætti að gera.  Á ég bara að hirða þessa peninga eða vera góður borgari og fara til lögreglunnar og skila töskunni.  Ef ég fer til lögreglunnar er ég hræddur um að lenda í miklum yfirheyrslum og jafnvel settur í fangelsi, því ég get á engan hátt gert grein fyrir þessum peningum og ekki víst að lögreglan trúi því að ég hafi bara fundið þá.  Það hefur hvarlað að mér að fara á einhvern stað og brenna þessa peninga, en samt væri gott að eiga þá.  Ég er viss um að einhver útrásarvíkingurinn hefur átt þessa tösku og ætlað úr landi með þessa peninga en frétt að lögreglan væri á eftir honum og því ekki þorað að taka hana með sér og því hennt henni út úr bílnum.

Nú verð ég að biðja ykkur mínu kæru bloggvinir um ráð;

Hvað á ég að gera?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband