Þjóðkirkjan

„Eins og Georg Bjarnfreðarson, þá hefur Ísland upplifað að umheimurinn hefur snúið baki við okkur, vegna framgöngu og viðhorfa okkar gagnvart öðrum. Við erum líka týnd og finnum ekki staðinn sem við viljum vera á,“ sagði séra Kristín Þórunn Tómasdóttir í útvarpsprédikun sem flutt var í Lágafellskirkju í dag. Hún ræddi um ástandið á Íslandi í dag, Icesave og Georg Bjarnfreðarson.

Er nú þjóðkirkjan farin að taka afstöðu í Icesave-málinu.  Ég hefði haldið að næg umræða væri í þjóðfélaginu svo að kirkjan gæti sparað sér að fara að predika um málið.  Ég er kominn með ofnæmi fyrir orðinu Icesave.


mbl.is „Við erum líka týnd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er félegt að heyra það frá þjóðkirkjunni að Íslendingar með tölu séu sósíópatar, sem hafi allir sem einn komið fram við umheiminn eins og samviskulausir ruddar og eigi bara skilið að verða grafnir í skuldum fyrir vikið.

Þætti gaman að vita hvort þetta er vitrun frá almættinu sjálfu eða hvort þessi prestnefna er að tala út frá ritningum sértrúarsafnaðarins, sem í daglegu tali kallast Samfylkingin.

Ótrúlegur hroki, yfirlæti og ósanngirni.  

Jón Steinar Ragnarsson, 10.1.2010 kl. 16:47

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er sammála þér í því að þjóðkirkjan á ekki að vera að blanda sér í svona mál.  Hins vegar vill ég mótmæla því að Samfylkingin sé sértrúarsöfnuður.  Þetta er heilbrigður og öflugur stjórnmálaflokkur.

Jakob Falur Kristinsson, 11.1.2010 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband