Silfur Egils

Alain Lipietz þingmaður á Evrópuþinginu og einn þeirra sem kom að gerð tilskipunar Evrópusambandsins um ábyrgð heimaríkis á bönkum, segir að Bretar og Hollendingar búnir að forðast lagalegu hliðina vita að þeir eru með veikan málstað og gætu tapað málinu.Þetta kom fram í Silfri Egils í dag.

Þetta eru góðar fréttir og þá er spurningin sú, hvers vegna ákvað ríkisstjórn Geirs H. Haarde haustið 2008 að fara samningaleiðina en ekki dómstólaleiðina.  Sú ákvörðun gerði Íslandi ókleyft að gera annað en semja við Breta og Hollendinga, því miður er of seint að fara með málið fyrir dómstóla.  Við lékum af okkur og það mun verða okkur dýrkeypt.  Því málið hefðum við unnið fyrir dómstólum og ekkert þurft að greiða.  Því er ábyrgð Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í þessu máli mikil og verður okkur dýrkeypt.


mbl.is Lipietz: Veikur málstaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það var eingin tilvilun að ég barðist fyrir því að stjórn Gerir H Haarde færi  frá en það sem tók við var ekki mér að skapi samfykingin er enn við stjórnvölin og virðist ekki ætla að skammast sýn neitt fyrir sinn hlut í hruninu við gerðum mistök það á að viðurkenna þegar við settum neyðarlög til að verja innistæður í íslenskum bönkum þau mistök er ekki hægt að leiðrétta en gætu að óbreyttu máli kostað okkur sjálfstæðið með greiðslufalli íslenka ríkissins.

Sigurður Haraldsson, 10.1.2010 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband