Uppskerubrestur

Útlit er fyrir uppskerubrest í Flórída í Bandaríkjunum en mikill kuldi hefur verið í ríkinu undanfarna daga og hefur frosið þar að næturlagi. Yfir 75% af allri appelsínuræktun í Bandaríkjunum er í Flórída og eins er mikið ræktað af sítrónum þar. Óttast appelsínubændur að tjónið sé gríðarlegt en appelsínumarkaðurinn er metinn á 9 milljarða Bandaríkjadala.

Þetta er vissulega mikið áfall fyrir Bandaríkin, en nú kynnast þeir hvað mörg þróunarlöndin hafa mátt þola í marga áratugi.  Þar sem hver uppskerubresturinn hefur rekið annan.


mbl.is Útlit fyrir uppskerubrest í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Passar ekki alveg saman að líkja uppskerubresti í þróunarlöndum eða þróunarlöndum saman við uppskerubrest í BNA, einhvernveginn stórefast ég um að þúsundir á þúsundur ofan munu drepast úr hor í BNA vegna þess að þeir eiga ekki appelsínur.

En aldrei er eitt slæmt svo slæmt að ekkert gott geti orðið úr því, kannski fara þeir og vinna eldsneyti úr þessum ónýtu appelsínum. Nah who am I kidding, þeir henda þeim.

Tómas Waagfjörð, 13.1.2010 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband