Fyrstir á staðinn

Töluvert er gert úr því á vefsíðu Addreseavisen í Þrándheimi í Noregi að íslenska rústabjörgunarsveitin hafi verið með fyrstu hjálparsveita til Haítí eftir jarðskjálftann mikla. Í grein á vefsíðunni í dag er bent á að íslenska sveitin hafi meira að segja komið á undan sveitum frá Bandaríkjunum.

Þetta þarf ekki að koma á óvart, því Íslendingar hafa fyrir löngu sannað að þeir eru bestir þegar kemur að björgunarstörfum.  Hér er ekki eitthvað kerfi til að þvælast fyrir, eins og er í mörgum löndum.


mbl.is Norðmenn hrósa Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Sú staðreynd að íslenskar hjálparsveitir eru byggðar upp af sjálfboðaliðum og embættismannakerfið hefur engin tök á að hanga í hálsmálinu á þeim gefur þeim frelsi og forskotið sem þarf.

Um leið og opinberir embættismenn komast með puttana í eitthvað þá situr allt fast því þeir þora aldrei að taka ákvarðanir sem gætu mögulega kannski stangast á við lög, reglugerðir eða verið andstætt hagsmunum einhvers.

Þetta minnir okkur á að halda hjálparstarfi áfram sem skemmtilegu áhugamáli sjálfboðaliða. Þeir sem keyptu flugeldana hjá þeim nýverið geta nú brosað út í bæði.

Baldvin Björgvinsson, 19.1.2010 kl. 12:18

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er ómetanlegt starf sem þessar björgunarsveitir vinna og allt í sjálfboðavinnu.  Við getum sannarlega verið stolt af okkar fólki í þessum sveitum.

Jakob Falur Kristinsson, 20.1.2010 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband