Hvalveiðar

 

Til hamingju Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.  Nú ert þú farinn að hafa áhrif á hvalveiðar í öðrum löndum, en því miður kemur þetta til af þínu kjarkleysi að þora ekki að leyfa hvalveiðar við Ísland.  Það hefði verið skemmtilegra ef þetta hefði verið á hinn veginn.  Þá hefðum við getað verið stolt af þínum gjörðum í stað þess að þurfa að skammast okkar fyrir að vera íslendingar.


mbl.is Sökktu norskum hvalbát til að fagna lokum hvalveiða á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað eigum við að hefja hvalveiðar í stórum stíl áður en þessi skepna verður þess valdandi að allar fiskveiðar við landið heyra sögunni til.  Ef ekki tekst að selja hvalkjötið ætum við þó alla veganna gefið það sem aðstoð á þau svæði í heiminum þar sem fólk er að hrynja niður úr hungri.

Jakob Falur Kristinsson, 14.9.2007 kl. 09:59

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æjá Einar Kristinn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2007 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband