Íran

Ætla allir að vera vondir við aumingja Írani, bara af því Bush langar svo í stríð gegn þeim.  Því eins og kemur fram í fréttinni höfðu tveir íranskir farþegar ekki skilað sér í vélina þrátt fyrir að ferðatöskur þeirra væru um borð og lenti vélin því í Keflavík til að losna við töskurnar en flugvélin var á leið frá Amsterdam til Toronto í Kanada.  Ekkert óeðlilegt fannst í töskunum og kom fram að um mistök hefði verið að ræða hjá flugfélaginu KLM við brottför frá Amsterdam.  Ætli þeir hafi ekki bara óvart misst af vélinni, aumingja mennirnir.
mbl.is Töskur fjarlægðar úr KLM-vél á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birkir Helgi Stefánsson

Tja... sagan segir nú að þeir voru með 5 töskur en þeir tóku aðeins 3 töskur úr flugvélinni, þeir hafa semsagt af einhverjum ástæðum hætt við. 

Birkir Helgi Stefánsson, 24.9.2007 kl. 00:49

2 identicon

ég vann á keflavíkurflugvelli og stundum vinnst ekki tími til að finna töskurnar og getur líka verið erfitt þar sem töskurnar eru setta í sérstaka gáma eins og fyrir boeing 747 eða airbus vélarnar því finnast þær stundum ekki og gæti það tafið flugið um einn og hálfan upp í þrjá tíma að leita eftir töskunum.

ólafur jónsson 24.9.2007 kl. 01:03

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sjálfsagt eru eðlilegar skýringar á þessu öllu.  Ég þekki bara ekki vel hvernig þessir hlutir ganga fyrir sig hjá flugfélögum og eru þetta sennilega eðlilegar vinnureglur hjá þeim.

Jakob Falur Kristinsson, 24.9.2007 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband