Spilling

Ekki veit ég hvernig þessi óháða stofnun Transparency International hefur fengið þessa niðurstöðu, en samkvæmt fréttinni er Ísland í sjötta sæti á lista yfir lönd þar sem minnst spilling ríkir í stjórnsýslunni og þessi stofnun hefur gefið út.  Ísland fær einkunnina 9,2.   Einnig kemur fram að í fyrra hafi Ísland verið í efsta sæti ásamt Finnlandi og Nýja-Sjálandi en þau eru enn í efsta sæti ásamt Danmörku með einkunnina 9,4.  Spilltustu löndin eru hins vegar Mayamar og Sómalía og fá þau einkunnina 1,4 en þriðja spilltasta landið er svo Írak sem fær einkunnina 1,5 af tíu mögulegum.  Ég hef nú aldrei vitað annað eins bull og kjaftæði og er maður nú ýmsu vanur þegar stjórnmálamenn eru að dásama hvað allt er gott hér á landi.  Við okkur sem búum á þessu landi blasir spilling hvert sem litið er.  Síður dagblaðanna eru þaktar af greinum um það sem miður hefur farið og Stöð 2 heldur úti sérstökum þætti Kompás, til að draga fram spillingu ofl. í þessu þjóðfélagi  Ég ætla ekki að draga í efa niðurstöður þessarar stofnunar en vil benda á að allar niðurstöður byggja á þeim forsendum og upplýsingum sem gengið er út frá að séu réttar og efast um að svo hafi verið notað hér og tel mjög sennilegt að slíkar upplýsingar komi frá hinu spillta embættismannakerfi Íslands og vill vara við, að fólk trúi svona fullyrðingum út í loftið.
mbl.is Lítil spilling á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband