Sigur Rós

Tónleikaferðalag hljómsveitarinnar Sigur Rósar er að margra mati einn merkast viðburður í íslenskri tónleikasögu.  Heimildarmyndin Sigur Rós-Heima gerir þessari óvenjulegu tónleikaferð ítarleg skil en myndin var frumsýnd í gær í Háskólabíói.  Sýningin var jafnframt opnunarsýning Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.  Eftir því sem segir í þessari frétt.  Ég verð nú að viðurkenna að þessi hljómsveit þótt heimsfræg sé hefur aldrei verið í neinu uppáhaldi hjá mér frekar en hin fræga Björk, en kannski er ég bara orðin svo gamall og vitlaus að ég hef ekkert vit á þessari tegund tónlistar og því lítið að marka þótt mér finnist þessi tónlist hundleiðinleg.  En ekki ætla ég að gagnrýna þá sem þetta kunna að meta.  Hinsvegar fagna ég hverri nýrri íslenskri kvikmynd bæði góðum og slæmum, því þar fær okkar íslenska hæfileikafólk á því sviði að nýta sína krafta en þeirra tækifæri eru því miður alltof fá.
mbl.is Heima er best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband