Ringó Starr

Ringó Starr kom nú síðdegis til Keflavíkurflugvallar með einkaþotu ásamt Oliviu Harrisson ekkju Georges Harrisson, en þau verða viðstödd þegar kveikt verður á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í kvöld.

Þrátt fyrir að flestir íslendingar taki þessu framtaki Yojo Ono fagnandi og átti sig á hvað þetta verður mikil kynning á Íslandi erlendis, sem mun skila sér í auknum ferðamannastraumi til landsins,  eru samt til nokkrir nöldurpúkar sem mega ekkert gott sjá og nú er nöldrað yfir ljósmengun í Reykjavík, þegar kveikt verður á þessari súlu. 

Ringó mun ætla að fara strax að lokinni þessari athöfn úr landi.  Hann er víst hættur að drekka svo ekki endurtekur hann sama leikinn og þegar hann kom síðast og var staddur á útihátíð í Atlaskógi og drakk víst hressilega af koníaki og þurfti þá að senda sérstaka flugvél frá Egilstöðum til Reykjavíkur til að sækja fyrir kappann ákveðna tegund af koníaki, sem hann blandaði síðan með Egils-appelsíni og skemmt sér vel. 

En batnandi mönnum er víst best að lifa.


mbl.is Ringo kominn til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú ert væntalega að víkja að viðtalinu í gær í sjónvarpinu við Þorstein Sæmundsson. Hann verðskuldar ekki hnjóðsyrðið "nöldurspúki" þótt hann reyni að "gæta hagsmuna" stjarnanna sem stjörnufræðingur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.10.2007 kl. 17:38

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt hjá þér Sigurður að Þorsteinn Sæmundsson á ekki skilið að kallast nöldurpúki.  Ég hreinlega vissi ekki hver hafði sagt þetta, mundi bara að ég las um þetta í einhverju blaði.

Jakob Falur Kristinsson, 10.10.2007 kl. 09:36

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Eins mun þessi hátíð sem hann fór á hafa verið í Atlavík á vegum Stuðmanna.

Jakob Falur Kristinsson, 10.10.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband