Fíkniefni

Fíkniefnin sem fundust um borð í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn vógu alls um 40 kíló en ekki 60 eins og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá í upphafi. Misræmið felst í því að töskur sem fíkniefnin fundust í höfðu verið þyngdar, a.m.k. sumar þeirra.

Hvaða máli skiptir það hvort þetta voru 40 kg. en ekki 60 kg.  Það er algert aukaatriði, það sem skiptir máli að þessi smygltilraun mistókst og búið er að handtaka alla sem að þessu stóðu og bíða þeir nú dóms.  Brotið er jafn alvarlegt hvort um er að ræða 40 eða 60 kíló.


mbl.is Fíkniefnin vógu 40 kíló en ekki 60
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafa menn ekkert spáð í hvort þessi 20 kíló fóru einfaldlega í sölu?

Garri 19.10.2007 kl. 16:07

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Mér þykir þú taka uppí þig félagi að sega að búið sé að handtaka alla sem að þessu stóðu og þeir bíði nú dóms. Ég held að þeir stærstu í málinu verði aldrei handteknir, því er nú andskotans ver....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 19.10.2007 kl. 21:30

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Hafsteinn, þessir stóru sleppa því miður oftast, en hvert kvikindi sem er handtekið heggur skarð í hópinn.  Og dropinn holar steininn.

Jakob Falur Kristinsson, 20.10.2007 kl. 09:30

4 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála þessu, dropinn holar steininn.kv.

Georg Eiður Arnarson, 20.10.2007 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband