Starfslok

Ólafur Örn Haraldsson, fráfarandi forstjóri Ratsjárstofnunar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann áréttar að fréttir um að hann hafi gengið á dyr án þess að upplýsa utanríkisráðuneytið um starfslok sín hjá stofnuninni, séu algerlega rangar. Segir Ólafur Örn að utanríkisráðherra hafi óskað eftir því, að hann léti af störfum helgina 13.-14. október.

Þetta er svolítið dularfullt mál, því ekki er langt síðan ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu sagðist ekkert vita af hverju Ólafur hefði hætt störfum og bætti því við að ráðuneytið hefði reynt að ná í Ólaf í nokkra daga en ekki tekist.  Hverskonar rugl er þetta eiginlega?  Það er auðvitað ljóst að Ólafur er framsóknarmaður og þar af leiðandi ekki hæfur í starfið, sem verður auðvitað að vera skipað af manni úr Samfylkingunni svo Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra geti átt eðlileg samskipti við forstjóra Ratsjárstofnunar, því ekki reikna ég með að hún skilji framsóknarmenn frekar en aðrir.  Þetta er allt mjög eðlilegt og í góðu samræmi við góða stjórnsýslu á Íslandi og löng hefð er fyrir.  En það hefði nú verið skemmtilegra hjá Ingibjörgu að láta ráðuneytisstjórann sinn vita að hún væri búinn að reka Ólaf en kannski er hann líka framsóknarmaður og því ekki viðræðuhæfur.


mbl.is Ólafur Örn segir ráðherra hafa óskað eftir starfslokum hans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Solla er bara að gera pláss fyrir einhverja vinkonu sína úr Samfó.

Samfylkingin er að verða stærsta atvinnumiðlun landsins.  Samfylkingin sér um sína!

Solla og Samfylkingin er að gera nákvæmlega það sama og þau hafa gagngrýnt aðra fyrir hér áður fyrr.  Ég held bara að ég gangi í Samfylkinguna upp á von um gott jobb, en fyrst þarf ég að skipta um kyn og láta breyta mér í konu. 

Gunnar Eiríksson 23.10.2007 kl. 14:38

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það skyldi þó aldrei vera?

Jóhann Elíasson, 23.10.2007 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband