Aumingja konan

Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra fóru allir átta félagar í norrænu vélhjólasamtökunum Hell’s Angels (Vítisenglum), sem var neitað um landgöngu í gær, úr landi í dag í fylgd með 16 lögreglumönnum. Eiginkonur tveggja þeirra voru einnig með í för. Önnur þeirra fór með eiginmanni sínum til Ósló í Noregi en hin varð eftir hér á landi.

Af hverju skyldi nú þessari konu hafa verið hleypt inn í landið?  Telst hún ekki stórhættuleg eins og eiginmaður hennar.  Væri nú ekki rétt að láta lögreglu vakta þessa konu allan sólahringinn svo við hinir saklausu íslendingar getum sofið áhyggjulausir. 


mbl.is Eiginkona Vítisengils varð eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Lárusson

Líklega er þetta "Pokahóra" með frjótt ímyndunarafl og frásagnargleði í stíl.  Verði þeim að góðu!

Njörður Lárusson, 4.11.2007 kl. 00:10

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þú ert ansi dómharður varðandi konu sem þú þekki ekki neitt og ég fæ ekki betur séð en þú hafir ansi frjótt ýmundunrafl sjálfur

Jakob Falur Kristinsson, 4.11.2007 kl. 07:58

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það var ansi ljót prentvilla hjá mér sem ég ætla að leiðrétta strax.  Það á að standa ímyndunarafl en ekki ýmunudunrafl.

Jakob Falur Kristinsson, 4.11.2007 kl. 08:01

4 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Ætla svo sem ekkert að segja að hún sé verri en hver önnur kona, en gæti kona ekki verið heilinn á bak við allt batteríið hjá Hell´s angels ?

Gæti það þá ekki alveg eins verið þessi kona ?

Bara pæling.

Ívar Jón Arnarson, 4.11.2007 kl. 15:55

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei þessi kona er bara heiðarleg norsk kona sem giftist vitleysing sem hún losnar ekki við.

Jakob Falur Kristinsson, 4.11.2007 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband