Aumingja Valgerður

Ég gat ekki annað en vorkennt Valgerði Sverrisdóttur þegar hún var í ræðustól á Alþingi að gera grein fyrir breyttri afstöðu sinni um eftirlaunafrumvarpið fræga.  Hún útskýrði það þannig; "Ja það var nú bara svona að hann Davíð var búinn að ná þverpólitískri sátt um þetta frumvarp á sínum tíma og vildi endilega fá það samþykkt og því greiddi ég atkvæði með því  En í dag eru breyttir tímar og þess vegna styð ég heilshugar frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur ofl. um að breyta þessu aftur í fyrra horf.  Þetta var í raun og veru bara tóm vitleysa en hann vildi þetta hann Davíð."  Batnandi fólki er best að lifa og gott að Valgerður Sverrisdóttir getur nú fylgt sinni eigin skoðun í atkvæðagreiðslu á Alþingi.  Því ef eitthvað er að marka sem konan er að segja, þá varð hún að greiða atkvæði áður eins og Davíð vildi, þótt hún teldi sjálf að verið væri að samþykkja tóma vitleysu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ertu virkilega að vorkenna þessum pappakassa..????

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 3.11.2007 kl. 20:57

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Hafsteinn ég er svo viðkvæmur og fann til með Valgerði þegar hún gráti nær, var að stynja þessu upp.

Jakob Falur Kristinsson, 4.11.2007 kl. 07:30

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég vissi nú að þú værir viðkvæmur og "góður í þér" en er þetta nú ekki aðeins yfirdrifin gúðmennska....?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 4.11.2007 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband