Tap samkvæmt áætlun

FLNú er FL Group farið að tapa peningum og þá spyr maður auðvitað er hinum nýja Súpermann Hannesi Smárasyni að fatast flugið.  Nei aldeilis ekki ef marka má tilkynningu frá félaginu, þetta voru ekki nema 27,1 milljarður og er bara af því að nú skráir félagið eignir sínar á markaðsvirði.  Ég hefði nú haldið að sú leið að skrá eignir á markaðsvirði kæmi félaginu til tekna en ekki öfugt því yfirleitt er reglan sú að bókfært verð eigna er mun lægra en markaðsverð þeirra en ef svo er ekki þá hafa viðkomandi eignir verið keyptar á allof dýru verði.  En þetta er nú bara smáatriði því að nú er búið að gera allan reksturinn straumlínulagaðan og þessir smáaurar sem töpuðust eru bara vegna þess að kostnaður var miklu hærri en tekjur og því kom tap og kostnaðurinn varð svona mikill vegna þess að vöxtur félagsins var svo mikill.  Þessi afkomutilkynning FL Group er einstök hvað það varðar að villa um fyrir hluthöfum hið gríðarlega tap og í raun var ekki um neitt tap að ræða heldur varð afkoma félagsins neikvæð.  Ekki vildi ég eiga hlutabréf í þessu fyrirtæki sem sendir frá sér svona kjaftæði.  Rekstur félagsins var ekki betri en það að félagið tapaði 27,1 milljarði og skiptir engu máli hvort félagið sé á eftir straumlínulagað, ferkantað eða kringlótt.  Þegar tekjur duga ekki fyrir útgjöldum verður einfaldlega TAP hvort sem Hannes Smárason á hlut að máli eða ekki.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband