Nýtt álver

Norðurál hefur í einu og öllu farið að lögum og reglum við framgang mats á umhverfisáhrifum vegna væntanlegs álvers í Helguvík. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Norðuráli en Landvernd hefur kært til umhverfisráðherra ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að ekki verði fjallað um allar tengdar framkvæmdir í mati á umhverfisáhrifum fyrir álver í Helguvík.

Auðvitað þarf ekki að vera skoða einhver smáatriði þegar um heilt álver er að ræða.  Landvernd getur kært og kært en það skiptir engu máli.  Fyrst álver á að rísa skal það reist og þótt að leggja þurfi línur þvers og kruss um allan Reykjanesskagann verður bara að hafa það.  Þetta er kannski ekkert augnayndi í byrjun, en svo venst þetta og með tímanum hætta allir að taka eftir þessu.  Við sem búum á þessu svæði viljum fá þetta álver og Landvernd kemur það akkúrat ekkert við.  Hvers eigum við að gjalda á þessu svæði?.  Af hverju eigum við ekki að fá okkar álver eins og allir aðrir? Erum við ekki líka íslendingar með okkar rétt?


mbl.is Norðurál: Höfum farið eftir lögum og reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú veist ekki hvað þú ert að biðja um....


(Bý nálægt einu svona helvíti)

Íris 4.11.2007 kl. 13:43

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú ég veit alveg hvað ég er að biðja um.  Það er ekkert neitt helvíti sem fylgir þessum blessuðum álverum, bara góðæri og velmegun og allt í +.

Jakob Falur Kristinsson, 4.11.2007 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband