Aðventuljós

Þótt enn séu 48 dagar til jóla taka sumir jólaskreytingarnar upp snemma upp úr kassanum og hefjast handa við að koma jólaljósunum fyrir á húsum sínum. Fyrstu jólaskreytingarnar birtust í Vestmannaeyjum um helgina en Vilhjálmur Vilhjálmsson, betur þekktur í bænum sem Villi á Burstafelli, er búinn að hengja seríur utan á hús sitt við Vestmannabrautina og setja aðventuljós í gluggana.

Er ekki sama tímatal hjá þeim í Eyjum og okkur á fasta landinu.  Ég hef ekkert á móti því að menn setji upp jólaljós nokkuð snemma.  Það gleður bara augað að lýsa upp húsin í skammdeginu.  Hinsvegar er ég svo íhaldssamur að mér finnst að aðventuljós eigi ekki að koma fyrr en aðventan er komin.  En samt finnst mér að ef einhver vill setja þau upp strax, þá sé það bara allt í lagi og ætla ekki að gagnrýna Villa á Burstafelli fyrir sín ljós.


mbl.is Aðventuljós komin út í glugga í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband