Á að drepa minkinn?

Miklu er kostað til að drepa minkinn hér á landi, því þetta telst vera skaðræðisskepna.  En er minkurinn svona slæmur?  Hann gerir þó ýmislegt gott sem lítið er talað um og þar á ég við að minkurinn heldur allri rottu í skefjum.  Á sínum tíma var á Bíldudal talsvert um rottur sem komu til af því að öllu sorpi var ekið á ákveðinn stað rétt fyrir utan þorpið og þar blómstraði rottan en svo fór að verða vart við mink á staðnum og ekki liðu margir mánuðir þar til rottan var horfinn með öllu,  Minkurinn hafði hreinlega útrýmt henni, mér finnst fátt viðbjóðslegra en rottur og þær sækja inn í hús sem minkurinn gerir ekki.  Nú er talsverður faraldur af rottum í Reykjavík vegna mikillrar úrkomu svo þær hafa sótt upp úr holræsum vegna vatnselgs.  Þessar rottur eiga síðan auðvelt að komast inn í hús og koma sér þar fyrir, það þarf ekki að fjalla mikið um alla smithættu og sjúkdóma sem þessi kvikindi geta borið með sér.  Þessar svokölluðu holræsarottur geta verið mjög stórar og grimmar, en þessum kvikindum slátrar minkurinn umsvifalaust.  Þá kýs ég nú heldur að mæta einum og einum mink, frekar en stórum ræsisrottum. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband