Vinnur Jesú hjá Fiskistofu?

Á síðasta fiskveiðiári 2006/2007 brunnu inni tæp 10 þúsund þorskígildistonn sem er nokkru meira en árið áður en þá duttu 7.800 tonn dauð niður.  Þetta er samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu og þá hafði verið flutt á milli ára eins og leyfilegt er.  Að venju vegur úthafsrækjan þyngst í þessu dæmi en eftirfarandi tegundir náðist ekki að veiða:

Kvóti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í þessum tölum er ekki talið með óveiddur rækjukvóti á Flæmska hattinum eða í lögsögu annarra ríkja þar sem við höfum veiðirétt eða óveiddur kvóti af úthafskarfa.  Þetta er einungis kvóti í íslenskri lögsögu.  Það vekur furðu hvers vegna verið er að kvótasetja tegundir sem ekki nást að veiða árum saman t.d. rækjukvóti ofl.  Einnig er það undrunarefni að hægt skuli vera að breyta einni fisktegund í aðra samkvæmt einhverri formúlu frá Fiskistofu. Ég hef ekki heyrt um neinn sem gerir slík kraftarverk nema Jesú Krist, sem breytti vatni í vín og mettaði 5 þúsund manns með nokkrum fiskum og einu brauði.  Því dettur mér að spyrja hvort Jesú sé orðinn starfsmaður hjá Fiskistofu og breyti fiskum í hinar ýmsu tegundir eftir pöntun frá útgerðum?  Er þá ekki líka hægt að biðja Jesú að stækka fyrir okkur þorskstofninn með því að breyta hvölum í þorsk?

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband