Loðnan

Rannsóknarskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson, lagði af stað í loðnu- og sjórannsóknaleiðangur í gærkvöldi. Rannsóknasvæðið mun spanna allt frá Vesturlandi að Norðausturlandi og djúpmið (Grænlandssund og Íslandshaf). Markmið leiðangursins eru að leita ungloðnu og einnig kynþroska loðnu sem verður uppistaða veiða á komandi ári.

Er þetta nú það nauðsynlegasta verkefnið hjá Hafrannsóknarstofnun?  Reyna að finna hana sem fyrst svo hægt verði að auka aflakvóta í loðnu og drepa sem mest af henni sem allra fyrst.  Á sama tíma og þorskstofninn er að hruni kominn vegna hungurs þá er um að gera að taka frá honum fæðuna því öllu skal til kostað svo kenningar Hafró um lélegt ástand þorskstofnsins standist og allir sætti sig við minni þorskveiðar á næsta fiskveiðiári.  Þetta skip sem liggur í höfn um það bil hálft árið vegna fjárskorts.  En þegar um er að ræða loðnuleit vantar ekki peninga svo skipið geti loksins látið úr höfn.  Ég er farinn að trúa því að það sé markmið Hafró að útrýma þorskstofninum og þegar hann svo endanlega er hruninn þá verður bara sagt "Það komu upp aðstæður sem við gátum ekki séð fyrir og svo hefur líka verið veitt meira í rúm 20 ár en við lögðum til".  Við þær aðstæður sem nú eru í hafinu er það hreinn glæpur að leyfa loðnuveiðar.


mbl.is Árni Friðriksson í loðnurannsóknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband