Leikreglur

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að Íslendingar muni á grunni reynslu við mótun alþjóðlegra leikreglna um hafið og nýtingu þess, beita sér fyrir mótun nauðsynlegra leikreglna á Norðurslóðum. Sagði Ingibjörg Sólrún, að þar verði alþjóðalög að vega þyngra en hnefaréttur og hagsmunir mannkyns í heild að vega þyngra en þröngir hagsmunir einstakra ríkja.

Mikill er máttur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.  Við eigum bara að stjórna öllu Norður -Atlandshafi.  Hvernig eigum við að gera þetta?  Við höfum haft nóg með að hafa stjórn innan okkar eigin lögsögu því Landhelgisgæslan býr við stöðugt fjársvelti og á í eilífum vandræðum að halda sínum skipum á sjó og ekki lagast ástandið þegar við fáum nýtt varðskip og þau verða orðin þrjú.  Þá er ekki víst að dugi lengur að fara til Færeyja og kaupa þar ódýra olíu eins og Gæslan hefur þurft að gera talsvert af til að geta verið með nokkuð eðlilegt úthald á tveimur varðskipum.


mbl.is Íslendingar munu beita sér fyrir leikreglum á Norðurslóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband