Sorgarsaga

Pekka-Eric Auvinen, 18 ára nemi sem framdi fjöldamorðin í framhaldsskóla í Tuusula í Finnlandi í gær, vildi að sögn lögreglu taka sem flesta með sér í gröfina og réð tilviljun því hverjir urðu fyrir skotum. Þeir tólf sem særðust hafa allir fengið að fara heim. Umtalað hefur verið að Auvinen hafi notað netið til að vara við fyrirætlun sinni, en fjöldi syrgjendahópa hefur verið stofnaður á netinu frá því í gær, sem og hópar sem taka undir hugmyndafræði Auvinen.

Það er alltaf hörmulegt þegar svona atburðir eiga sér stað hvar sem er í heiminum og enn hörmulegra finnst mér að til skuli vera hópar af fólki sem komi því á framfæri á netinu að þetta hafi verið eitthvað flott eða gott.  Það er ekki skemmtilegt fyrir syrgjendur að sjá síðan á netinu að til skuli vera vitleysingar sem fagna svona hörmungum.  Það er nógu erfitt hverju foreldri að kynnast því að barn þess sé myrt á þennan hátt svo ekki sé líka verið að strá salti í sár syrgjenda með því að taka undir svona vitfirringu. 


mbl.is Vildi taka sem flesta með sér í gröfina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband