Pakistan

Ríkisfjölmiðlar í Pakistan höfðu eftir Pervez Musharraf, forseta landsins í dag, að þingkosningar verði haldnar fyrir 15. febrúar á næsta ári. Þá ítrekaði Musharraf fyrirheit um að hann muni segja af sér sem yfirmaður hers landsins. Musharraf lýsti yfir neyðarástandi í landinu um síðustu helgi og rak forseta hæstaréttar úr embætti.

Ekki dettur mér í hug að ætla að Musharraf standi við þessa yfirlýsingu um kosningar.  Ástæðan að hann rak forseta hæstaréttar var einmitt sú að hæstiréttur landsins var að úrskurða að hann væri ekki réttkjörinn forseti vegna þess að hann er líka yfirmaður hersins.  Þegar svona menn geta ekki haldið völdum nema með herlögum og valdbeitingum, þá heitir það einræði og er eins langt frá lýðræði og hægt er að komast.  Það á að taka þennan náunga og skjóta hann sem fyrst og leyfa lýðræðinu að þróast í þessu landi sem er eins og flestir vita undir sérstökum verndarvæng Bandaríkjanna, sem hefur nú tekist að gera Rússa góða í augum hins venjulega íbúa í Pakistan og drápu Rússar þó nokkur hundruð þúsund manns á sínum tíma þegar þeir réðust inn í landið og voru það allt saklausir borgarar. 


mbl.is Musharraf ítrekar fyrirheit um kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband