Hærri vextir

Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna, sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna, hafa hækkað um 0,20%. Vextir af slíkum lánum með uppgreiðsluþóknun hækkuðu í 6,45% úr 6,25% og lán án uppgreiðsluþóknunar hækkuðu í 6,75% úr 6,55%. Hækkunin hefur þegar tekið gildi, að því er kemur fram á vef Íbúðalánasjóðs.

Auðvitað eltir hver annan í þessari vaxtavitleysu, en sumir reyna þó að villa fyrir með furðulegu orðafari, eins og hattarlán, uppgreiðsluþóknun og öðrum furðulegum nöfnum.

Það er sama hvaða orð mönnum dettur í hug að nota er útkoman bara alltaf sú sama. Vextir á Íslandi hækka stöðugt, það þar ekki nein sérstök orð um það.  Þetta er einfaldlega OKUR og ekkert annað.


mbl.is Vextir Sparisjóðanna hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki gleyma því að "vertrygging" leggst ofan á þessa vexti.  Ætlar ríkisstjórnin ekkert að gera til að stoppa þetta "vaxtaokur" og "glæpastarfsemi" sem verðtryggingin er ef Ísland myndi ganga í ESB, þá yrði verðtryggingin afnumin og bara það myndi réttlæta inngöngu í ESB nú og með því að taka upp EVRUNA myndum við losna við Seðlabankann og afskipti hans af efnahagslífinu og það sem meira er við myndum losna við DAVÍÐ ODDSSON og það væri, að mínu mati,stærsti kosturinn.

Jóhann Elíasson, 8.11.2007 kl. 15:39

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já nú held ég að sé komið nóg og ekkert um annað að ræða en ganga í ESB sem fyrst.

Jakob Falur Kristinsson, 8.11.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband