Blaðálfar

Það getur vel verið að einhverjum finnist þetta voða fyndið og sniðugt.  En sem íbúi í Sandgerði finnst mér þetta ekkert sniðugt.  Ég var einmitt að undra mig á því af hverju komu enginn dagblöð í morgun en nú veit ég af hverju það var.  Það getur vel verið að þetta þykir góður húmor hér í Sandgerði en ekki hef ég smekk fyrir hann.  Ég hef einnig orðið fyrir barðinu á svona sniðugum mönnum hér í Sandgerði en í margar vikur mátti ég glíma við þann ófögnuð að einhverjir komu í anddyrið á húsinu sem ég bý í, en í því eru 18 íbúðir og alltaf var verið að eyðileggja merkinguna á dyrabjöllunni hjá mér.  Ekki gafst ég upp og lagaði þetta alltaf aftur og hef nú fengið frið fyrir þessu í nokkra mánuði.  Svona Sandgerðis-húmor kann ég ekki að meta og bið þá frekar um hinn ekta Vestfirska-húmor, þar kann fólk þó almenna mannasiði og gætir þess að skaða ekki náungann.
mbl.is Blaðaálfar í Sandgerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband