Eitt metið enn

Greiningardeild Kaupþings bendir á það í sérriti sínu um vísitölu neysluverðs að verðbólgan hafi ekki mælst jafn há í nóvember og nú í 17 ár. Tólf mánaða verðbólga fer hækkandi og mælist nú 5,2% samanborið við 4,5% í október. Sé hins vegar litið framhjá skattalækkunum í upphafi árs mælist verðbólgan 7%.

Nokkur umræða hefur verið undanfarið að til að ná verðbólgunni niður væri rétt að taka húsnæðiskostnaðinn út úr vísitölunni og jafnvel bensín og olíu.  Ekki tel ég rétt að taka þessa liði út, því þá væri í raun verið að falsa hina raunverulegu vísitölu og að sama skapi er jafn vitlaust að líta framhjá skattalækkunum.  Vísitalan á að vera tæki til að mæla raunverulegt verðlag í landinu og hvað kostar að lifa í þessu landi.  Það þurfa allir einhverstaðar að búa og greiða því húsnæðiskostnað og flestir eiga bíl og þurfa þess vegna að greiða fyrir bensín og olíur.  Og þótt fólk eigi ekki bíl þá hefur verð á bensíni og olíum áhrif á allan ferðakostnað, hvort sem ferðast er með bifreiðum, flugvélum eða skipum.  Ef ríkisstjórnin vill hinsvegar taka út hina ýmsu liði er einkar auðvelt að ráða því hvað verðbólgan mælist á hverjum tíma, með því að kippa út öllum þeim liðum sem virka til hækkunar og ákveða þannig verðbólguna á hverjum tíma.  En eftir stendur þó alltaf að sú verðbólgumæling er fölsk og kannski er það bara allt í lagi ef allir eru ánægðir með það.


mbl.is Verðbólga ekki meiri í nóvember í 17 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband