Einelti

Veðurstofa Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem fréttaflutningur um einelti innan stofnunarinnar í fréttatíma Ríkissjónvarpsins síðast liðinn laugardag var harmaður. Í yfirlýsingunni kemur fram að rangt hafi verið farið með staðreyndir í málinu og að um persónuleg og erfið mál sé að ræða og vandasamt sé að fjalla um slíkt í fjölmiðlum þar sem það geti hindrað úrlausn málsins.

Telja þeir sem stjórna Veðurstofu Íslands að einelti á þeirra vinnustað sé eitthvað einkamál hjá þeim.  Þetta er opinber stofnun og því kemur öllum við hvað er í gangi þarna.  Að halda því fram að rangt sé farið með staðreyndir því ekki hafi 28% starfsmannanna orðið fyrir einelti heldur aðeins 12%.  Það skiptir nákvæmlega engu máli hvaða hlutfall af starfsmönnum hefur orðið fyrir einelti.  Það sem skiptir máli er það að einelti hefur átt sér stað hjá þessari stofnun og hún sem ríkisstofnun er ekkert hafin yfir það að um hennar mál sé fjallað á opinberum vettvangi.  Ef stjórnendur Veðurstofu Íslands þora ekki að rætt sé um það sem athugunarvert er í hennar starfi er eitthvað skrýtið á ferðinni.  Hvað hafa þessir menn að fela sem ekki þolir opinbera umræðu? Hvað er svona erfitt við úrlausn þessa vandamáls?  Er ekki ósköp einfalt að reka þann yfirmann sem hefur valdið þessu einelti?  Stjórnendur Veðurstofunnar virðast galla í þá gryfju að líta á þessa stofnun sem sitt einkafyrirtæki og haga sér samkvæmt því.  Með réttu ætti að reka þá alla því það virðist vera samantekin ráð hjá þessum mönnum að leyna því sem þarna hefur skeð.


mbl.is „Veðurstofan er góður vinnustaður"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband