Stöndum okkur bara nokkuð vel

Áfengisneysla á Íslandi var 7,1 alkóhóllítri á íbúa 15 ára og eldri árið 2005 sem var heldur meira en t.d. í Noregi (6,4) og Svíþjóð (6,6). Meðaltalið fyrir ríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, var 9,5. Í um tveimur af hverjum þremur ríkjum OECD dró úr áfengisneyslu á tímabilinu 1980-2005. Ísland var hins vegar í hópi þeirra ríkja þar sem áfengisneysla jókst og var aukningin mest á Íslandi eða 65%.

Við stöndum okkur nokkuð vel í samanburði við hin Norðurlöndin.  Okkur tókst að auka neyslu okkar á áfengi um 65% á aðeins 5 árum og munum auðvitað gera enn betur þegar frumvarpið hans Sigurðar Kára um að selja bjór og léttvín í matvöruverslunum verður samþykkt sem er nokkuð öruggt enda stutt af heilbrigðisráðherranum Guðlaugi Þór Þórðarsyni.  Þessi stuðningur Guðlaugs er nokkuð sérstakur að því leyti að leitun mun vera að í öðrum löndum að heilbrigðisráðherra styðji aukið aðgengi á áfengum drykkjum. 

Hinsvegar er ekkert að marka þessar tölur þær eru allar frá þeim tíma sem ég var mjög virkur í drykkjunni og hef örugglega híft meðaltalið verulega upp, svo þær eiga eftir að snarlækka þar sem ég er hættur að drekka áfenga drykki og munar nú um minna.


mbl.is Áfengisneysla jókst um 65% á Íslandi á aldarfjórðungi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband