Íslensku bankarnir

Eins og flestir vita hefur hið svokallaða skuldatryggingaálag íslensku bankann verið að hækka að undaförnu.  Halldór J. Kristjánsson bankastjóri Landsbankans vill kenna Kaupþing um þetta og segir ástæðuna vera nýlega yfirtöku Kaupþings á hollenskum banka og nú gjaldi hinir bankarnir fyrir.  Ég hef nú ekki betur séð en að Landsbankinn, Glitnir ofl. hafi verið ansi duglegir við að fjárfesta í öðrum bönkum erlendis og ætla nú að kenna einum banka um frekar en öðrum er auðvita bara bull.  Staðreyndin er einfaldlega sú að þetta álag er að hækka vegna minna lánstrausts íslensku bankanna erlendis og ekki rétt að benda bara á einn aðila.  Kaupþing sem er langstæðasti bankinn vegur auðvitað þungt á móti hinum, en hann er ekki einn sem er sökudólgur í þessu máli.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sverrir Hermannsson sagði alltaf að þetta væri froðufé, ég held að ég sé að möguleyti sammála honum um það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2007 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband