Húsleit

verslunStarfsmenn Samkeppniseftirlitsins komu um klukkan 9:30 á skrifstofu Bónus með húsleitarheimild frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá hefur Samkeppniseftirlitið einnig gert húsleit á skrifstofu Krónunnar, en það staðfesti rekstrarstjóri Krónunnar í samtali við mbl.is. Fram kemur í tilkynningu frá Bónus, að leitin sé gerð í tengslum við þá umræðu sem hafi átt sér stað s.l tvær vikur og falið í sér alvarlegar ásakanir í garð fyrirtækisins. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, sagði í samtali við mbl.is í morgun að þar á bæ hafi menn ekkert að fela og húsleitinni sé fagnað.

Auðvita fagna forstöðumenn þessara verslana húsleitinni, vegna þess að ekkert athugavert mun finnast.  Heldur Samkeppniseftirlitið virkilega að menn hafi ekki lært eitthvað af "olíumálinu" og þótt samráð sé í gangi gera menn það ekki skriflegt í dag eða skrá vandlega í tölvur.  Samráðið er auðvitað bara munnleg milli æðstu manna og um það samið án þess að tölvupóstar gangi á milli.

Ég skil ekki af hverju Samkeppniseftirlitið fer ekki og leitar hjá birgjum þessara verslana, þar liggur nefnilega vandinn sem kemur í veg fyrir eðlilega samkeppni.


mbl.is Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Bónus og Krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er heldur klaufalegt allt saman.  Það er mitt mat.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2007 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband