Skotgleði

Búið er að birta opinberlega myndskeið í Kanada sem sýnir síðustu andartök innflytjanda sem lést þegar lögreglan skaut hann með rafstuðbyssu. Robert Dziekanski, sem var fertugur innflytjandi frá Póllandi, var handtekinn af lögreglu þegar hann missti stjórn á skapi sínu á alþjóðaflugvellinum í Vancouver þann 14. október sl.

Enn heldur lögregla áfram að drepa saklaust fólk, án þess að það hafi beinlínis verið ætlun lögreglu.


mbl.is Maður lést í Kanada þegar lögreglumenn skutu hann með rafstuðbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Var að horfa á myndbandið og þetta var ljótt að sjá, held að allir verði betur settir ef að misgáfulegir lögregluþjónar séu ekki að veifa þessum tólum og nota á íslenska brennivínsberserki í ölæði.

Georg P Sveinbjörnsson, 15.11.2007 kl. 13:24

2 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Getið þið ímyndað ykkur íslensku sumarlögregluna með þessar stuðbyssur niður í miðbæ um helgar...það væri sjón að sjá...allir í stuði

Jón Þór Ólafsson, 16.11.2007 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband