FL Croup

Ætla MÁ að verðmæti skráðra eigna FL Group hafi lækkað um í kringum 20 milljarða króna það sem af er fjórða ársfjórðungi en ekki um 25 milljarða eins og sagði í frétt á vef Berlingske Tidende og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.

Nú er tap ekki lengur tap, heldur óinnleyst tap.  Hverskonar rugl er þetta og hver á að blekkja?  Ég hefði haldið að tap væri alltaf tap.  Ég er kannski svona heimskur en einhvern veginn finnst mér að ef fyrirtæki tapaði þá væri það að tapa peningum eða öðrum eignum og það geti ekki verið hægt að ákveða það hvort fyrirtækið innleysir tapið eða ekki.  Er virkilega búið að rugla og þvæla svo í uppgjörsaðferðum að hægt er að vera með óinnleyst tap í uppgjörum og ef svo er þá innleysir enginn stjórnandi sem er með fullu viti slíkt tap.  Er málið einfaldlega ekki það að viðkomandi fyrirtæki á eftir að borga tapið og svo ég noti nú fína málfarið og tapið er ekki innleyst, þá hljóta einhverjir aðrir að þurfa að greiða fyrir það eða horfa á eftir hagnaði í viðskiptum hverfa.  Því það sem einn græðir eru einhverjir aðrir sem tapa sömu upphæð og öfugt.  Það lögmál breytist aldrei. 


mbl.is Óinnleyst tap FL Group ofmetið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband