Svartir kettir

Gærdagurinn var "dagur svarta kattarins" á Ítalíu að frumkvæði dýraverndarsamtaka, sem vildu með átakinu reyna að koma í veg fyrir að svartir kettir séu drepnir vegna þeirrar hjátrúar að þeim fylgi ólán. Slík hjátrú er útbreidd, en óvíða er hún jafn sterk og á Ítalíu, þar sem þúsundir svartra katta eru aflífaðir á ári hverju af þessum sökum.

Þessi hjátrú á sér upphaf á miðöldum og ætti ekki að þekkjast í dag.  Ég hef sjálfur átt marga ketti og þar af tvo svarta og ekki var ég neitt var við mun á köttunum eftir því hvernig þeir voru á litinn.  Síðasti kötturinn sem ég átt var allur svartur, hvergi neinn annar litur og er hann með þeim gæfari og sá skemmtilegasti, sem ég hef átt.  Þannig að ég blæs á alla svona fordóma því þetta er miðaldar hugsunarháttur, sem ég tek ekki mark á.  Þetta er svona álíka viðhorf og var á sínum tíma hjá hvítum mönnum í Bandaríkjunum gagnvart svörtu fólki.


mbl.is Reynt að bjarga svörtum köttum á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband