Meira um sátt Svandísar

Þar sem ég var að enda við að skrifa um þessa frægu sátt og tók fram að ég vissi ekki í hverju sáttin væri fólgin en þar sem þetta er komið inná vef mbl.is verð ég að láta eftirfarandi koma fram: 

Sátt náðist í máli Svandísar Svavarsdóttur gegn Orkuveitu Reykjavíkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að sögn Ragnars Hall, lögmanns Svandísar. Fellst sáttin í því að Orkuveitan viðurkennir að eigendafundurinn 3. október hafi verið ólögmætur og Svandís fellur frá kröfu um að ákvarðanir fundarins verði dæmdar ólögmætar þar sem þær hafa þegar allar verið dregnar til baka, segir Ragnar.

Orkuveitan greiðir málskostnað Svandísar. Ragnar segir Svandísi sátta við þessa niðurstöðu enda í samræmi við það sem hún fór fram á. Þannig að hún telur sig hafa náð fram öllum sínum markmiðum með þessari málshöfðun að sögn Ragnars í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.

Í síðustu viku var samþykkt á eigendafundi OR að taka aftur ákvarðanir á umdeildum eigendafundi 3. október sl. varðandi samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy.

Jafnframt fólu eigendur stjórnarformanni Orkuveitunnar að ræða við aðra eigendur Reykjavík Energy Invest og Geysi Green Energy um stöðu og framhald málsins og að gera eigendum grein fyrir framgangi viðræðna á eigendafundi sem haldinn verður eftir viku.


mbl.is Sátt í máli Svandísar gegn OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband