Jólatré

Logað hefur á Hamborgartrénu á Miðbakka Reykjavíkurhafnar á...Ljós verða tendruð á Hamborgartrénu á Miðbakka Reykjavíkurhafnar í fertugasta sinn á morgun klukkan 17. Ýmsir hafa lagt hönd á plóginn til að koma trénu til landsins, en þar má fyrst nefna Karl Konrad skógarhöggsmann, þýska herinn sem flutti tréð að skipshlið í Hamborg og Eimskipafélag Íslands sem sá um flutninginn til landsins.

Ekki mátti það nú seinna vera, Jólin alveg að bresta á.  Það má ekki klikka á svona atriðum þá verður eitt allsherjar Jólahrun og hver ætlar að útskýra það fyrir blessuðum börnunum, en þetta rétt slapp fyrir horn núna.  Ég legg til að Jólatréð verði ekki tekið niður aftur að loknum Jólum svo það verði tilbúið á réttum tíma fyrir Jólin 2008 og þá er ekkert að gera nema bara að stinga í samband og það í september sem er fyrsti mánuður Jóla.  Þá er öruggt að ekkert getur klikkað nema fólkið sjálft.


mbl.is Ljós tendruð á Hamborgartré á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ljós kveikt á Hamborgartrénu????? Er hægt að búa til mál úr öllu. Nenni ekki að mæta á þá vitleysu og sjá BrúnkukremsBinga "taka á móti því" með sólheimabrosið á smettinu......aftur á móti mæti ég þegar Tommi kveikir á Hamborgarabúllutrénu......meira vit í því.

pétur svavarsson 23.11.2007 kl. 17:33

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég ætla ekki að dæma hvort tréð er vitrænna, í raun eru þau það hvorugt.  þú velur auðvitað það sem gleður þig mest.  Ef þú lest greinina betur þá er ég að gera grín að öllu því liði sem er hoppandi af gleði út af jólatré og ekki kominn desember.  Það er hægt að gera mál úr öllu og fyrst nær það tilgangi sínum þegar aðrir fara að hjálpa manni við verkið og vil ég þakka þér fyrir

Jakob Falur Kristinsson, 24.11.2007 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband