Landslið

Steven Gerrard vonsvikinn eftir tapið gegn Króatíu. Hann...Þó leikmenn enska landsliðsins í knattspyrnu hafi fallið á lokaprófinu, tapað fyrir Króötum og misst af því að komast í úrslitakeppni EM, fá þeir ágætis laun fyrir þátttökuna í undankeppninni. Greiðslur til einstakra leikmanna fyrir landsleikina nema allt að 19 milljónum króna.

Er þetta eðlilegt að fá allt að 19 milljónir í greiðslur fyrir að komast ekki áfram?.  Fer ekki að verða best fyrir liðsmenn enska landsliðsins að hreinlega tapa öllum sínum leikjum.  Það hlýtur að gefa þeim hæstu launin , miðað við þetta.


mbl.is Góð laun fyrir að komast ekki áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þetta er nú ekki svo einfalt.  Málið er að það hefur verið þannig að þetta eru atvinnumenn, sem fá marga peninga fyrir að spila fótbolta með sínum félagsliðum. Þess vegna geta þeir ekki spilað fyrir ekki neitt með landsliðinu.

Hitt er svo annað mál að kannski þarf að lækka þessar greiðslur eða fella þær niður ef menn standa sig ekki 100 prósent.

 Havð segirðu um það?

Jón Halldór Guðmundsson, 24.11.2007 kl. 11:48

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er nú svo lítið inn í þessum fótbolta og hélt að ekki væri greitt fyrir landsleiki, heldur væru menn aðeins að spila fyrir þjóð sína.  En alla veganna finnst mér að greiðslurnar ættu að lækka við hvern tapleik,  Einnig finnst mér að greiðslur í þessari íþrótt séu komnar langt út fyrir það, sem hægt er að kalla eðlilegt.  Þetta er orðinn hreinn bissnes en samt kallað íþrótt og því miður virðist þetta að vera koma hér á landi líka.

Jakob Falur Kristinsson, 24.11.2007 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband