Öryggisleysi

Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar var hækkað í Belgíu...Michael Chertoff, heimavarnarráðherra Bandaríkjanna, segir eina helstu ógnina við öryggi Bandaríkjanna, felast innan Evrópu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Þá segir hann raunverulega hættu á því að Evrópa verði bækistöð hryðjuverkamanna og að líklegt sé að bandarísk yfirvöld auki enn eftirlit með þeim sem komi til Bandaríkjanna frá Evrópu.

 Hann segir þó stefnt að því að tryggja að auknar öryggisráðstafanir komi ekki niður á ferðamannaiðnaðinum í landinu eða viðskipum.

Er Bush nú búinn að finna nýjan óvin, og nú er það bara öll Evrópa sem er hættuleg.  Verður kannski ráðist þar inn næst ?  Hverskonar andskotans kjaftæði er þetta að auknar öryggisráðstafanir komi ekki niður á ferðamannaiðnaðinum í landinu.  Það er nú ekki langt síðan að íslensk kona var járnuð á höndum og fótum við komu sína sem ferðamaður til Bandaríkjanna og farið með hana eins og um væri að ræða stórhættulegan glæpamann.  Hver vill eiga slíkt yfir höfði sér.  Ég er ansi hræddur um að fólk ferðist eitthvað annað en til USA í sínum leyfum og ég tala nú ekki um þegar Ísland virðist vera á leiðinni úr Sameinuðu Þjóðunum.  Þá er hægt að handtaka nánast hver einast ferðamann sem kemur frá Íslandi og setja í fangelsi og við getum ekkert gert, nema nagað neglurnar.


mbl.is „Mesta ógnin innan Evrópu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alvegrétt , ef einhverstaðar eru öfgamenn og herskáir eru það ráðamenn í Bandaríkjunum.  Það væri rétta svar Evrópubúa við þessari vitleysu að banna bandaríkjamönnum að koma til Evrópu.  Þeir eru best geymdir heima hjá sér.

Jakob Falur Kristinsson, 16.1.2008 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband