Ný nefnd

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um áramótin. Formaður nefndarinnar er Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður.

Jæja þar kom að því að Jóhanna er aðeins að taka við sér en eitt finnst mér skrýtið að þessi nefnd á aðeins að fjalla um málefni aldraðra. 

Hvað með okkur öryrkjana á að gleyma okkur einu sinni enn?


mbl.is Nefnd skipuð um málefni aldraðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jakop.

Já þetta með Örykrkjana þetta er endalaus bið sem að margir auðnast ekki að sjá.Hún ætti allavega að fara að tilkynna eitthvað Bitastætt.

Gangi þér vel.

Þórarinn Þ Gíslason 25.1.2008 kl. 03:39

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já það þýðir lítið að lofa og lofa fyrir kosningar og gera síðan ekki neitt.

Jakob Falur Kristinsson, 25.1.2008 kl. 17:44

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Enn ein nefndin skipuð til þess að "svæfa" málið.  Heilög Jóhanna ætti nú að þekkja það að það er sitthvað að "gaspra" í stjórnarandstöðu heldur en að vera við stjórnvölinn.  Það sem ég held að sé hennar mein, er að hún hafi ekki reiknað með því að fara í ríkisstjórn, hvað þá að hún yrði ráðherra Félagsmála og nú situr hún uppi með það að geta ekki framkvæmt það sem hún gagnrýndi sem mest þegar hún var í stjórnarandstöðu.  Já endirinn á stjórnmálaferlinum hjá henni verður ekki glæsilegur.

Jóhann Elíasson, 25.1.2008 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband