Hlutabréf

Kauphöll Íslands.Hlutabréf lækkuðu í Kauphöll Íslands þegar viðskipti hófust þar í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,57% á fyrstu mínútunum. Gengi bréfa SPRON hefur lækkað um 4,33% og bréf Exista um 2,24%. Þá hafa bréf viðskiptabankanna lækkað um 1,1-1,9%.

Það er alveg með ólíkindum hvað gert er mikið úr fréttum af lækkun hlutabréfa í Kauphöllinni.  Vita þeir aðilar sem um þessi mál eru að fjalla ekki hvað hlutabréf eru.  Margir þeirra sem eru að stunda þessi viðskipt hafa ekki kynnst öðru en sífeldum hækkunum og bankarnir hafa lánað mörgum aðilum stórfé til að kaupa sér hlutabréf og hafa fram að þessu látið nægja að taka bara veði í bréfunum sjálfum.  Það er eðli hlutabréfa að geta bæði hækkað og lækkað í verði allt eftir afkomu þeirra fyrirtækja sem hlutabréf hafa verið keypt í.  Nú þegar hlutabréfin lækka þá fara bankarnir að sjálfsögðu að ókyrrast og heimta aukin veð, því hlutabréfin standa ekki lengur undir því láni sem tekið var til að kaupa þau.  Ef fólk getur ekki komið með aukið veð innkalla bankarnir hlutabréfin og selja síðan sem fyrst aftur og þá oft með einhverjum afföllum bara til að losna við þau og fá eitthvað upp í upphaflega lánið.  Þetta veldur síðan því að aukið framboð leiðir til enn meiri lækkunar og sífellt fleiri og fleiri eru að missa sín bréf til bankanna.  Þetta verður síðan að vítahring og gengi hlutabréfa fellur stöðugt.  Það alvarlegasta í þessu er að sumir lífeyrissjóðir hafa verið að taka þátt í þessum leik og hætta þar með lífeyris fólks.


mbl.is Hlutabréf lækka í Kauphöll Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband