Óbeisluð fegurð

Matthildur Helgadóttir. Matthildi Helgadóttur hefur verið boðið að halda erindi á 52. þingi kvennanefndar Sameinuðu Þjóðanna sem haldið verður í New York. Matthildur var ein af konunum sem fengu hugmynd að fegurðarsamkeppninni Óbeisluð fegurð sem haldin var í Hnífsdal fyrir tæpu ári síðan.

Maður verður bara stoltur af því að vera Vestfirðingur við svona fréttir.  Og enn gleðilegra er að komin skuli svona jákvæð frétt að vestan.  Það hefur verið fjallað alltof mikið um það neikvæða sem er að gerast á Vestfjörðum.  En svo fá nokkrar snjallar konur á Ísafirði svona snilldar hugmynd sem slær alveg í gegn.  Vonandi fáum við fleiri svona fréttir af Vestfjörðum.


mbl.is Óbeisluð fegurð til SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ein af Jakob minn, Matthildur ER FORINGINN í óbeislaðri fegurð.  Hún fékk hugmyndina og sem betur fer átti hún góðar vinkonur og eiginmann sem tóku slaginn með henni.  En það hefur líka komið fram að það var fyrst og fremst áhuginn og góð þátttaka sem gerði það að verkum að þær gerðu alvöru úr þessu.  Sem betur fer.  Matthildur er algjörlega einstök manneskja, og svo Eygló, Gréta, Íris og Guðmundur þetta er teymið sem kom þessu ágæta verkefni á koppinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 22:34

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já þið getið verið stolt af ykkar framtaki í þessu verkefni enda ekki við öðru að búast af Vestfirðingum og þá sérstaklega Ísfirðingum sem ég held mikið upp á.

Jakob Falur Kristinsson, 30.1.2008 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband