Virkjað

 Íslenska orkufyrirtækið Iceland Energy Group hyggst byggja og reka tvær vatnsaflsvirkjanir í Serbneska lýðveldinu í Bosníu Hersegóvínu (Republika Srpska). Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður um 600 milljónir evra eða um 55 milljarðar íslenskra króna.

Já miklir menn erum við Hrólfur minn, eins og maðurinn sagði.

Ég átta mig ekki alveg á hvaða fyrirtæki þetta Ivelan Energy Group, er.  Er einhver sem veit eitthvað um þetta fyrirtæki?


mbl.is Virkjað fyrir 55 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hef ekki heyrt minnst aukateknu orði á fyrirtæki þetta. Hvað eru íslensku fyrirtækin orðin mörg í orkugeiranum?

Iceland drilling (Jarðboranir) er það elsta

Hecla green energy dótturfyrirtæki þess og er að hefja borframkvæmdir austan við Starnberger vatn sunnan við München

Geysir green energy á Jarðboranir að öllu leyti og auk þess allvænan hluta af Hitaveitu Suðurnesja

Enex og Rei

Atorka sem á 32% í GGE sem aftur á Jarðboranir

Sá sem ætlar sér að kaupa sig inn í orkugeirann á Íslandi er leiðin greið með kaupum á hlutabréfum í Atorku. Mæli með því enda eru verð þeirra mjög lágt um þessar mundir.

Guðjón Sigþór Jensson, 6.2.2008 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband