Borgarstjórn

Ólafur F. Magnússon.Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segist ekki telja að skýrsla stýrihóps um Reykjavik Energy Invest muni hafa áhrif á meirihlutasamstarfið í borginni og að allir kjörnir borgarfulltrúar hafi lært af málinu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður borgarráðs, segist ekki munu axla ábyrgð á málinu enda hafi hann í engu farið út fyrir sitt umboð.

Ætlar nú Ólafur F. Magnússon að fara að blanda sér í REI-vitleysuna.  Hvernig ætlar svo Vilhjálmur Þ. að axla sína ábyrgð.  Það er ekki nóg að segjast bara ætla að gera það og svo ekki meir.  Hann á auðvitað að segja af sér maðurinn, það er ekki nóg að fá fyrirgefningu synda sinna hjá öðrum borgarfulltrúum.  Það eru fleiri sem búa í Reykjavík en þeir.  En af hverju þarf hann að axla einhverja ábyrgð ef hann fór í engu út fyrir sitt umboð.  Hvers konar andskotans rugl og kjaftæði er þetta að verða.  Ég held að núverandi meirihluti ætti bara að steinhalda kjafti og vona að þetta gleymist sem fyrst.  Að vera að viðhalda umræðu og tala um ábyrgð manna í þessu máli er bara til þess fallinn að málið gleymist ekki og fylgi sjálfstæðismanna í borginni er í frjálsu falli niður á við.   Á ábyrgð manna í þessu máli reynir ekki á, fyrr en í næstu kosningum.  Þannig að ég held að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætti að forða sér sem fyrst.


mbl.is Áhersla verði lögð á opin og lýðræðisleg vinnubrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Gamli misgóði Villi segir nefnilega og leggur á það áherslu, að hann ætli ekki að axla ábyrgð, hann á nefnilega svo góða fjölskyldu, eða eitthvað álíka...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 7.2.2008 kl. 14:39

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Bull og vitleysa hjá manni sem ekkert veit eða man.  Ég veit ekki af hverju verið er að kalla þennan mann gamla góða Villa.  Það er algert öfugmæli.

Jakob Falur Kristinsson, 7.2.2008 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband