Herjólfur

Vestmannaferjan Herjólfur. Herjólfur er enn í Þorlákshöfn vegna veðurs en skipið kom þangað frá Vestmannaeyjum um klukkan 11:30 í morgun. Gert er ráð fyrir að skipið sigli af stað til Eyja klukkan 17 en engin seinni ferð verður farin í kvöld.

Nú held ég að Árni Johnsen verði að byrja að grafa göngin til Eyja, þetta gengur ekki lengur.  Fyrst þetta stóra skip kemst ekki til Eyja hvernig halda menn að ástandið væri núna í nýrri höfn á Bakkafjöru.  Árni á ekki að grafa göngin beint til lands, því þar er allt ófært líka.  Hann á að grafa þau alla leið til Reykjavíkur.  Það þýðir ekkert að vera að hugsa um einhvern kostnað.  Það er nóg til af peningum í þessu landi.  Það þarf bara kjark til að taka ákvörðun og sækja þá peninga sem vantar.  Það á bara að láta Árna um þetta og þá reddast það einhvern veginn.


mbl.is Herjólfur enn í Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skipið kemst alveg til Eyja. Málið er bara það að farþegarnir komast ekki í skipið. Þannig að það er tilgangslaust að vera að fara til Eyja með mannlaust skip, bara til að sigla aftur í Þorló að sækja farþegana þegar þrengslin opna loksins.....

Guðbjörg 7.2.2008 kl. 16:28

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Heppnir að þurfa ekki að sitja á Hellisheiðinni á leið austur á Sanda í snjó og sandstorm....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 7.2.2008 kl. 18:34

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nú er bara að treysta á að Árni reddi þessu.

Jakob Falur Kristinsson, 7.2.2008 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband