Slagsmál og ölvun

Mynd 405764 Mikil ölvun var í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt og gærkvöldi og voru miklar annir hjá lögreglunni. Nokkuð var um slagsmál og fengu nokkrir að gista fangaklefa sökum óláta og ölvunar í bænum. Þá er ökumaður sem stöðvaður var af lögreglu í gærkvöldi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Er það svona sem íbúar í Reykjanesbæ vilja skemmta sér?  Ég held ekki, þetta munu víst hafa verið fólk úr öðrum bæjarfélögum, þetta voru nokkrir Hafnfirðingar, 3 úr Garðabæ, 12 úr Breiðholti einnig fólk af Suðurlandi, einn frá Vestmannaeyjum.  Íbúar í Reykjanesbæ láta ekki svona, nema einstaka pólverjar að rífa kjaft en það gerir nú ekkert til því þá skilur enginn.


mbl.is Ölvunarerill í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Já voru þetta ekki bara 4 frá Bíldudal og restin úr Sandgerði???

Ólafur Björn Ólafsson, 17.2.2008 kl. 12:27

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir að benda mér á þetta.  Þú ert greinilega með þetta allt á hreinu.  Rétt skal vera rétt og ekki vil ég vera að ásaka blásaklaust fólk.  En varst þú ekki þarna líka, það var alla veganna einhver Óli sem gaf mér á kjaftinn.

Jakob Falur Kristinsson, 18.2.2008 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband