Ofsaakstur

Mynd 456381Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði 18 ára stúlku á 199 km/klst hraða á Reykjanesbrautinni rétt eftir miðnætti í nótt. Að sögn lögreglu var stúlkan svipt ökuréttindum á staðnum.

Það munaði ekki um það bara á 199 km. hraða.  Hvað er fólk eiginlega að hugsa þegar það hagar sér svona og nýkomin með bílpróf.  Þetta er bæði brjálæði, rugl og heimska og svo á að leyfa henni að taka bílprófið aftur svo hún geti þá endurtekið leikinn.  sektin skiptir engu máli, pabbi og mamma borga.


mbl.is Tekin á 199 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Það er aldeilis för í umferðinni. Henni lá á blessaðri stúlkunni. Gott að vera ekki á þjóðvegum landsins þegar fólk er í svona banastuði. Ég hef oft verið undrandi þegar ég er á ferðalögum þegar Ég er á löglegum hraða og margir fara framúr og hverfa. á hvaða hraða eru þeir eiginlega?

Guð gefi þér góðan dag.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.7.2008 kl. 08:46

2 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þvílíkt ábyrgðarleysi.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 17.7.2008 kl. 08:55

3 identicon

Ein viðbót við innlegg Jakobs: Vonandi verður ökutækið gert upptækt.

Stefán 17.7.2008 kl. 10:27

4 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Ég hrósa happi yfir að hafa ekki verið á Reykjanesbrautinni þegar ungfrúin var þar á ferðinni.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 17.7.2008 kl. 16:31

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Stefán ef lögunum er fylgt eftir er verður að gera ökutækið upptækt.

Jakob Falur Kristinsson, 17.7.2008 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband