Hass

Lögreglan í Marokkó lagði hald á yfir 10 tonn af hassi í kjölfar áhlaups sem fíkniefnalögreglumenn gerðu við strandlengjuna á norðurhluta landsins.

Það munaði ekki um það bara 10 tonn takk.  Svo þótti mikið þegar einhver 70 ár Hollendingur var tekinn í Leifsstöð með nokkur hundruð kíló af hassi.


mbl.is Lögðu hald á rúm 10 tonn af hassi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Miða við lönd og legu þá finnst mér 100 kíló hellingur.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 10:57

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er samt lítið miðað við 10 tonn eða 10.000 kg.

Jakob Falur Kristinsson, 21.7.2008 kl. 11:01

3 identicon

Sem er einnig lítið miðað við eftirspurnina í heiminum.

Stebbi 21.7.2008 kl. 12:22

4 identicon

Þetta voru nú reyndar tæp 200 kíló sem voru tekin á Seyðisfirði en það er ekki aðalatriðið. Í Marókkó er ræktað hass í stórum stíl þannig að ef hlutirnir eru settir í samhengi þá eru þessi mál bæði af stærri gerðinni.  

Runólfur 21.7.2008 kl. 15:24

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er með hass eins og allt annað að meðan mikil eftirspurn er eftir því þá koma alltaf aðilar til að fullnægja eftirspurninni.  Það magn sem tollgæsla í hverju landi er að taka hvort það eru 200 kg. eða 10 tonn skipta engu máli hvað varðar neysluna.  Ég er ekki hlynntur eiturlyfjum en er komin á þá skoðun að þegar baráttan er vonlaus þá sé rétt að velja næst besta kostinn eins og gert er í Hollandi.  Þar er leyft að reykja hass og til að minnka afbrot þá fá fíklar frítt dóp ef þeir eiga ekki til peninga.  Þannig næst að stýra neyslunni og fá yfirsýn yfir hvað um er að vera.

Jakob Falur Kristinsson, 21.7.2008 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband