Viltir ferðamenn

Sænsk hjón, sem ætluðu á ráðstefnu á Íslandi, urðu frekar hissa þegar þau voru send í vegabréfaskoðun á Gardemoenflugvelli í Ósló þaðan sem þau ætluðu að fljúga til Íslands. Í ljós kom að þau höfðu bókað flug til Rijeka í Króatíu og þangað fóru þau.

Eitthvað hafa þessi blessuð hjón verið utan við sig þegar þau bókuðu flugið, en kannski er ekkert verra að fara til Króatíu en Íslands.


mbl.is Ætluðu til Reykjavíkur - lentu í Rijeka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Að geta ruglast á Reykjavík og Rijeka er nú skrítið að mínu mati.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 12:45

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Væri ekki hægt að græja úr þeim villibráðarpaté.....?

Hrönn Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 13:05

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

                                                              

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.7.2008 kl. 13:52

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég veit ekki hvað á að gera við svona fólk g þykist ég nú vita margt.  Ég held að það sé best geymt heima hjá sér.

Jakob Falur Kristinsson, 21.7.2008 kl. 16:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband