Húsbyggingar

Nú er kominn upp furðuleg staða á fasteignamarkaðnum.  Vegna hárra vaxta og gengislækkunar er byggingarkostnaður á nýjum íbúðum orðinn hærri en mögulegt söluverð þeirra.  Þannig að fjöldi verktaka situr uppi með nýjar búðir sem aldrei seljast og enda hjá bönkunum sem eign um leið og viðkomandi verktaki verður gerður gjaldþrota.  Talið sé að þetta séu á milli 3.000 til 4.000 íbúðir og rað- og einbýlishús.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Þetta kemur ekki á óvart og fá bankarnir fleiri hús í hausinn fljótlega. Unga fólkið fer því miður bráðum að missa eigur sínar. Þau keyptu eignir með lán og loforð og aftur loforð frá bönkunum sem hafa verið svikin. Vona að unga fólkið láti í sér heyra þannig að forráðamönnum bankanna og forráðamönnum þjóðarinnar verði ekki vært.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.7.2008 kl. 12:43

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað bera bankarnir mikla ábyrgð í þessum málum.  Þeir lánuðu og lánuðu og stundum fannst manni að ungu fólki væri nánast smalað inn í bankana til að taka lán.  Það var byrjað að eltast við börnin þegar þau fermdust og lofað peningagjöf ef stofnaður væri bankarareikningur.  Síðan kom næsta áhlaup þegar unglingar hófu nám í framhaldsskólum, þá var boðið upp á yfirdráttareikning, veitt tölvukaupalán, lán fyrir bílprófi og lán og aftur bara lán.  Þeir sem fóru í Háskóla fengu tilboð um sérstök námslokalán svo hægt væri að fara í ferð erlendis eftir útskrift.  Nú skella bankarnir öllu í lás og lána ekkert og kenna um verðfalli á húseignum í Bandaríkjunum hvernig svo sem hægt er að tengja það saman.

Jakob Falur Kristinsson, 23.7.2008 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband