Fannst látinn

Nakti maðurinn sem mikil leit var gerð að í gær á Esjunni fannst látinn í Gunnlausskarði í gærkvöldi.  Það er nokkuð augljóst að maðurinn hefur klikkast eitthvað og ætlað að drepa sig.  En óneitarlega er aðferðin sem hann notar talsvert geðveik.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Voðalega er þetta eitthvað hranaleg orðanotkun; "klikkast" og "geðveik".

Maðurinn hefur greinilega verið á ystu nöf af þunglyndi eða áhyggjum af einhverju tagi og því miður ákveðið að taka líf sitt.

Hvernig hann gerði það er ekkert klikkaðra en hvað annað, að mínu mati. Ég gæti allavega alveg hugsað mér að hlaupa nakinn út í náttúruna og klára þetta þannig, ef ég væri ákveðinn í að enda hlutina á annað borð.

Væri ekki nær að segja bara að hann hafi greinilega ekki haft það gott og valið óvenjulega aðferð við að enda líf sitt, svona fyrir sakir nærgætni?

mbk, 

Kristinn Theódórsson, 25.7.2008 kl. 11:50

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sammála þér Kristinn. Jkob hefur örugglega ekki meint þetta illa. Sjálfur var ég óvarkár og sé eftir því, rétt er það "aðgát skal höfð í nærveru sálar".

Sigurður Þórðarson, 25.7.2008 kl. 12:12

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta var kannski klaufalega orðað og sjálfsagt ekki sæmandi að skrifa svona um látinn mann.

Jakob Falur Kristinsson, 25.7.2008 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband